fimmtudagur, júlí 01, 2004

48/51

Það eru hlutföllin sem Michael Moore spáir í bók sinni heimskir hvítir karlar, sem ég er að lesa. Hlutföllin sem hann talar um eru konur og karlar í heiminum, en Moore heldur að konur eigi eftir að ríkja á jörðinni að lokum... útskýrir allavega af hverju allar vinkonur mínar hafa eignast stelpu en ekki strák!!
Annars er þetta ekkert smá fyndin bók, ég skil eiginlega ekkert í því af hverju Bush hefur ekki látið CIA leyniskyttu drepa gaurinn fyrir löngu síðan..það kemur kannski að því..?

En ég sit inni í dag..eins og svo marga aðra daga!! Það er frekar rólegt hérna og mig langar ekkert smá að stinga af og gera e-ð sniðugt!!!!!! Soffía er að reyna að plata mig í útilegu um helgina, veit ekki alveg, ég er líka ein heima og hefði alveg viljað slappa af og drekka pínu bjór og sauma og hafa plötukynningu og fara í bað og liggja í grasinu og og.. en það má svo sem gera þetta næstum allt í útilegu :) Held stelpurnar séu að spá í Flúðir..hmmm, er gaman þar??

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það hefur nú ýmislegt gerst á Flúðum Gyðan mín!!!!
Unicorn félagið stofnað 2003, tómatsósupartý, lemjum-alla-út-með-kúst partýið, tvíburarnir sem voru giftar Coke starfsmönnum, nærbuxur í Hrunalaug, tvær vinkonur kyssast og og og ! Skelltu þér á Flúðir og málaðu þorpið rautt elskan mín:o) Vodki í tómatsósu klikkar aldrei...hehehehe!!

kveðja.....þú veist hver ég er;o)

8:52 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hahahahahahahahahaha, já svo sannarlega!!! Fólk hefur látið að sér kveða á Flúðum...það hlýtur að vera öðruvísi súrefni þar en annars staðar :)
við sjáum hvað setur kæru vinir...Gyða

10:12 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

og að sjálfsögðu mun ég fá fullt af tómatsósu lánaða til að setja á pulsuna mína...hehehehe, vel marineruð tómatsósa!!!!!!!!!!

10:14 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home