mánudagur, apríl 02, 2007

..

Ímyndum okkur að strákur nái í mömmu sína úr vinnunni...eða kannski skutli ömmu sinni útí apótek. Hann leggur í stæði fyrir utan hjá viðkomandi og kannski flautar, jafnvel hringir og lætur vita að hann sé kominn. Mamma/amma kemur út og sest inn í bíl og saman bruna þau af stað á bíl með einkanúmerið ZÍANA!!!!

pæling..sá þetta einkanúmer síðast þegar ég fór á mínar kæru æskuslóðir Selfoss og ég veit ekki hvort það er bara ég eða fleiri sem sjá einstaklega smekklega merkingu út úr því...nema gaurinn eigi persneska læðu sem heitir ziana í höfuðið á egypskri drottningu?????????

laugardagur, mars 31, 2007


Ég var hálfsvekkt út í sjálfa mig seint í gærkvöldi þegar ég uppgötvaði það að ég missti af þættinum american inventor..ég sá nefnilega fyrsta þáttinn óvart með huldu og var búin að hlakka til að sjá meira. Skil bara ekki hvað það er endalaust hægt að finna upp á rugli til að sýna í sjónvarpi. Við sátum þarna tvær og göptum, vissum í raun ekki hvort við ættum að hlæja eða gráta eða bara yfirhöfuð hvernig viðbrögð við ættum að sýna..

Þarna var til dæmis fjölskyldufaðir sem ég í augnablikinu man ekki hvað heitir. Hann var afar stoltur af sjálfum sér, búinn að veðsetja húsið fyrir fullt af pening og ég veit ekki hvað en var þó viss um að uppfinning hans væri sú allra allra besta. Kvaðst hann mjög inspíreraður af fjölskyldunni, fallegu konunni og börnunum og hafði mörg falleg orð um þau hálfklökkur. Eftir að hafa lofsamað bandaríska fósturjörð og uppfinningu sína sem myndi vera þarfaþing í framtíðinni, eða breakthrough in history, svipti hann hulu af undraverðri uppfinningunni.....SKÓFLU!
(Ég og hulda tókum andköf í sófanum)
Þögnin var þrúgandi en dómararnir ákváðu að gefa honum séns sem betur fer því ég hlakka svo sannarlega til þegar ég get farið í hagkaup og keypt mér skóflu, enda aldrei séð annað eins undratæki á ævinni!!

mánudagur, mars 26, 2007

yes i´m gonna be a star

allavega gyða á daewoo því ég náði í ökuskírteinið mitt áðan!!! Ég stóð reyndar í þeirri meiningu að ég væri orðin lögleg á götum Íslands frá og með 27.mars en raunin var önnur.
Eftir langa bið í símanum þá svaraði vinsamleg rödd á skiptborði lögreglustöðvarinnar. Ég bar upp erindið (hvar á ég að sækja skírteinið á morgun?) og hún svaraði: "Þú ert búin að vera með bílpróf síðan 26.febrúar, viltu ekki bara drífa þig að ná í skírteinið" !!!!!!!!

Ég veit eiginlega ekki ennþá hvort ég á að hlæja eða gráta..greyið konan á skiptiborðinu, ég gargaði á hana í símann "ERTAÐ LJÚGA??" og fór svo beint og sótti dýrmætt ferðafrelsi mitt aftur. Ég gekk mas svo langt vera búin að skrifa í dagbókina mína 23 dagar í bílpróf, 14 dagar, 3 dagar osfrv...Misreikningurinn felst líklega í því að ökuníðingar hafa 30 daga til að skila inn skírteini en það er byrjað að telja frá því þeir eru teknir ef ég skil þetta rétt(sem er enn ein skjekkjan í ísl refsilöggjöfinni)

Það sem gerir þetta allt enn súrara er að ég lét plata mig í verkefni á vegum strætó sem fólst í því að telja farþega síðastliðnar 2 vikur og er því búin að hanga í strætó á öllum hugsanlegum tímum sólarhringsins og merkja við alla sem koma inn og fara út. Það var samt ekki nærri því eins hræðilegt og það hljómar því mér finnst svo gaman að skoða fólk og ég fékk alveg nóg að skoða;)


fimmtudagur, mars 01, 2007

Kæri netheimur...

Ég ofanrituð er loksins komin með nettengingu aðeins 7 árum eftir aldamót. Tel ég þetta heilmikið afrek þrátt fyrir að mér hafi augljóslega tekist að gera það á eins ópraktískan máta og hægt er..hmm. Fékk samt fína hjálp í gegnum síma hjá vinalegum gaur að nafni Egill sem sá um þetta allt fyrir mig (og hann er pottþétt á prósentum við að koma út eins mörgum tengingum og hann mögulega getur á hverjum degi).

En ég er líka komin m B.A gráðu í bókmenntafræði og orðin 25 ára, allt í sama mánuðinum jeij:) já og svo hef ég nýlega hafið sambúð með Elvis (geri aðrir betur) sem ég tel að hafi endurholdgast í dökkhærðum, bringuloðnum, rymjandi og sístækkandi leðurblökuketti...
Okkur líður vel saman. Ég gef honum mat og hann þvær mér um hárið á morgnana eða hjálpar til við að þvo fötin mín með því að sjúga þau í hálsmálinu. Hann er líka búinn að endurhanna nokkrar sokkabuxur og leggings með því að búa til falleg göt svo fætur mínir njóti sín betur í þeim.

Það eina sem okkur vantar hér í Bólstaðarhlíð er atvinnutækifæri eða e-r með spádómsgáfu sem getur sagt okkur hvað gerist næst..ég er officially orðin fullorðin hvað gerist núna???

föstudagur, janúar 12, 2007

tölvunámskeið fyrir konur

Æji ég er orðin svoldið þreytt á þessum endaulausu kk/kvk skilyrðingum sem er endalaust verið að setja manni...Alveg eins og svona aulabrandarar, ,,hvað þarf margar konur til að skipta um ljósaperu?'' eða ,,Guð skapaði manninn því titrarar slá ekki blettinn'' hlæhlæ (eða þannig). Skil bara ekki alveg þennan kynjameting sem fólki finnst svo ofsalega gaman að velta sér upp úr. Það er ekki kynið heldur sálin sem gildir og vá hvað ég hef hitt jafn margar nautheimskar og almennt illa innrættar stelpur sem stráka, konur og karla líka.
Það stakk mig pínu að sjá auglýst tölvunámskeið bara fyrir konur þar sem fara á í grunnþætti almennrar tölvuvinnslu því ég hreinlega fullyrði að svoleiðis námskeið yrði seint í boði fyrir karlmenn. Af hverju leyfum við svona samfélagslegar alhæfingar??
Allir kk sem hafa áhuga á grunnþætti almennrar tölvuvinnslu eru vinsamlegast beðnir um að fletta mér upp í símaskrá og hafa samband og saman getum við komist til botns í því hvort það sé erfðafræðilegur galli ef kk kunna ekki á tölvur, eða hvort hér sé um hreina mismunun að ræða....nema þá að konur vilji læra á tölvu án þess að hafa kk nálægt og því sé verið að svara þeirri eftirspurn, hvað veit ég svo sem...

sunnudagur, desember 10, 2006

búum til betri heim sameinumst hjálpum þeim

hvernig er það, verð ég betri manneskja með því að kaupa mér nýjan síma f jól og senda diskófriskó til 3.heimsríkjanna í Afríku?? Ég skil ekki alveg þessa auglýsingaherferð...ætla þau að borða símann minn? eða nota hann? og til hvers? hann verður batteríslaus e hálftíma..sendi ég þá hleðslutækið með?? Skil bara ekki hverskonar hjálparstarfsemi það er að henda símum í þá sem minna mega sín...asnalegt!!

STYÐJUM UNICEF!!

miðvikudagur, október 25, 2006

takk fyrir mig airwaves!

Það er alltaf soldið erfitt að gera upp við sig svona hvað stendur uppúr, sérstaklega því ég sá svo margt ólíkt og skemmtilegt; hugsa ég sé mest ánægð með það að hafa hvergi staðið í röð nema í smástund og að ég hafi náð að sjá flest af því sem ég var búin að ákveða að sjá...jú og svo var líka svo rosalega gaman;)