föstudagur, apríl 29, 2005

I´m back

Get ekki lengur orða bundist..eða þannig, það er allavega kominn tími til að segja eitthvað.
Hmmmm..margir misleiðinlegir atburðir er kannski það sem helst hefur gerst en um þá vil ég segja sem minnst. Elsku bróðir minn hann Snorri er óðum að hressast :) hann kom heim um síðustu helgi og er núna í dag aftur að koma heim :) Ef það er eitthvað hægt að læra á svona lífsreynslu þá held ég að það sé rétt sem hann sagði um daginn, HEIMA ER BEST!!

Já og svo eru það prófin. Í dag er kominn dagur 3 þar sem ég sit í náttbuxum og veit að ég er á eftir áætlun..er að reyna að krafsa í bakkann með því að undirbúa stórskemmtilega ritgerð um gagnrýni og ritdóma, á meðan sólin skín...

Íris bauð mér í gær að flytja með sér í félagslega íbúð í fellunum sökum heilaskaða af öllum þessum lestri, hvernig væri það?? Eins og staðan er í dag held ég bara að það sé ekkert svo slæmt