föstudagur, febrúar 18, 2005

Get into the groove...

Lífið fer alltaf upp og niður :

Aftanákeyrsla + Gyða í brjáluðu skapi!!!
Bréf frá Árný Argentínumær + Gyða brosir og hlær
Ritdómur bíður + Gyða er löt!
Helgin framundan + Gyða er glöð
Segja mömmu frá því að bíllinn hennar sé "svoldið" beyglaður + hjálp hjálp hjálp!!!!


Ég er enn að safna kjarki...djöfull að þetta skuli þurfa að gerast í dag af öllum dögum!!!

fimmtudagur, febrúar 10, 2005

hvert flýgur tíminn...?

Getur það verið að sólahringurinn sé á einhvers konar yfirsnúningi nú á þessum síðustu og verstu tímum...það eða þá að ég er farin að lesa ískyggilega hægt! Og ég fæ það aldeilis í hausinn..fór áðan til að ræða ritgerðarefni fyrir menning og markaðs ritgerðina og hitti þar fyrir strák sem ætlar að skrifa um það sama og ég. Af því hann mætti fyrr þá var hann auðvitað búinn að eigna sér að skrifa um Barthes og tengja hann Gramsci, en það var einmitt álíka og mín hugmynd :/
Ég verð því að fá nýja hugmynd sem fyrst...hugsihugsihugs

...þýðir þó ekki að grenja yfir því

Flugmiðinn minn er kominn og hótelið líka og Ísak sefur á Mars volta miðunum eins og ormur á gulli :) jibbí, ég er að fara til London!!!!!!!