sunnudagur, október 30, 2005

Some of these days you´ll miss me honey..

Jahérna, ég bloggaði helling í gær í vinnunni og það hvarf allt! Helv blogg drasl, og ér ekki einu sinni m gestabók eða myndir eða neitt á meðan til er fólk sem virkilega leggur líf og sál í það að leyfa hverjum sem er að fylgjast með sér á netinu;) Verð að fara að standa mig betur í þessu...ég hef það bara í huganum sem ég skrifaði nenni ekki að skrifa aftur um airwaves (full í röð lýsir því vel!)

Annars lítið skeð. Í gær var ég í pels og drakk bjór. Ætlaði út þangað til mér tókst að detta í hálkunni á leiðinni yfir til Írisar. Það dró úr mér og ég endaði bara á að labba aftur heim og kúra undir sæng. Efast ekki um að Íris hafi staðið sig vel fyrir hönd okkar beggja ;)

Annars hangi ég bara núna í vinnunni. Vorkenni þessu gamla fólki sem ég er að fylgjast með. Tannlaust og man ekki neitt, með bleyjur í þokkabót! Með fullri virðingu fyrir þeim (og það eru sko margir hérna sem mér þykir rosa vænt um) en þá langar mig ekkert til að verða gömul. Og það eru núþegar bara 28 ár þangað til ég verð fimmtug :/

sjitt!

laugardagur, október 29, 2005

..if you tolerate this then your children will be next

Þetta helv lag er búið að hertaka mig, ég er andsetin og dettur ekkert lengur í hug en þessi tiltekna lína. Ástandið hefur verið svona í næstum viku og engin lausn í sjónmáli!!! Ef e-r getur veitt aðstoð þá væri hún vel þegin, ég er að verða geðveik!!!!!!

En..

Airwaves. Verður mar ekki að tala um það. Ég fór og það var gaman þangað til á laugardaginn þegar ég fór í biðröðina á nasa m huldu sem var alveg glatað! Við gáfumst upp eftir 2 og hálfan tíma held ég..búin að pirra mig á því og nenni þessvegna ekki að tala um það meir.
Það sem stendur hinsvegar uppúr finnst mér vera singapore sling, jáp og juliette lewis mínus tónlistin samt (hún fær prik fyrir að vera flott).
Laugardagskvöldið fór meira í það að drekka vodka þangað til ég var orðin dofin í munninum... Ég gat kallað fram minningar um jan mayen, úlpu og ampop og the zutons (sem ekki var spennandi).

laugardagur, október 15, 2005

Jæja..

1 skilaboð:

Miðaldra kk á amerískum jeppum, drullist á e-ð offroad svæði og fáið úr honum þar við að tæta upp náttúruna í stað þess að hanga aftan í rassgatinu á mér þegar ég er að keyra!!!!