sunnudagur, maí 01, 2005

Nú hef ég fullkomlega sannað þá kenningu mína að það er satt að fólk sé annaðhvort heppið í spilum eða ástum; ég er búin að leggja spider-solitaire kapal svona milljón sinnum í dag og hef líklega unnið annaðhvert skipti..
segir það okkur ekki tvennt:

a) óheppin í ástum
b) það gengur ekkert að skrifa þessa helv ritgerð

..kannski fer þetta samt líka eftir erfiðleikastigi, hægt er að leggja kapalinn á 3 vegu. Ég er enn bara í medium. Þýðir það að mín bíði enn fáránlegri ástaróheppni eða þá að ritgerðin verði aldrei tilbúin??????

Óguð, það er svo mikill sunnudagur í dag :/