föstudagur, júlí 16, 2004

Voulez vous couchez avec moi, ce soir??
 
Djöfull get ég roðnað og blánað í framan þegar ég geri mig að fíbli!! ég þoli það ekki!!!! Í tilefni þess mun ég skrifa þessa færslu með eldrauðu!!!!
Sökum starfs míns hérna í upplýsingamiðstöðinni þá verð ég stundum að beita gífurlegri tungumálakunnáttu minni og tala þá tungum á meðan ég reyni að útskýra e-ð fyrir þessum blessuðu túristum...hmmmm og lenti í því í dag! ohhhh, það kom fólk sem skildi bara ekkert í ensku..sama hvað ég reyndi (og franska er síðasta úrræði) þannig að ég fór að reyna að tala við þau. Það gekk nú alveg ágætlega nema hvað að það voru fleiri að bíða og hlusta þannig að ég byrjaði svona aðeins að roðna (franskan mín er ekkert voða flott, ég get miklu frekar hlustað og skilið og svarað á ensku) og á endanum var það ekki Gyða sem afgreiddi franska fólkið, heldur eldhnötturinn Rouge sem spúði eldi og brennisteini...og til að toppa það allt saman þá er ég líka í rauðum bol......klakadrottning hvað, ég er svoooo blóðheit í dag ;)
 
Er samt alveg að verða búin að vinna...þá get ég farið heim og skvett framan í mig vatni!!!! það veitir víst ekki af!!!
 
 

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Jæja Gyða mín...hvað er svo að frétta af þér sætustustust???
Farin að sakna þín....en það verður gaman um næstu helgi;o) ,,innipúki, inn" úje

1:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home