föstudagur, júní 24, 2005

Sviti og sítt hár..

Ég þoli ekki óstjórnlegan veikleika minn fyrir tónlistarmönnum eða bara strákum sem spila á hljóðfæri, úff!!!!!!
Á Dillon í gær spiluðu brain police, dr. spock og deep jimmy og ég sat og horfði á og lét mig dreyma um ólýsanlega töff gaurinn sem ég á eftir að finna :) hann var samt ekki á svæðinu og er mas ekki til, nema bara í hausnum á mér...allavega ennþá, . Sumir vilja meina að ég sé of picky og að það sé best að gefa e-m nörda séns sem sé svo hægt að móta eftir eigin höfði en ég gæti það aldrei! Skil ekki tilganginn með því, ég vil að e-ð í fari hins aðilans höfði svo mikið til mín að mig svimar og fái kitl í magann, ekki neina possible makeover tilfinningu.

1 Comments:

Blogger mandarina said...

mmmmm mig langar í fisk sem spilar á saxafón, elskar djass, er bladamadur og greidir sér aldrei.mmmmm

6:35 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home