sunnudagur, september 25, 2005

these games we play...

Jám, ég var "klukkuð" af henni lenu :) lena mín það tók mig smá tíma að fatta hvað þetta djö klukk væri, hélt þú værir bara svona funny að segja klukk við mig, hehehe

1. Ég er Gyða og orðin 23ja, óviss um framtíð nútíð og fortíð en hef það oftast ágætt sem single fiskur í hamingjuleit.

2. Ég er að safna hári (á hausnum) og skóm. Það er bæði tímafrekt og dýrt áhugamál.

3. Ég átti aldrei buffalo skó þó ég sé frá selfossi en ég hef átt þónokkur ljósakort. Árangur hefur þó látið á sér standa því ég fæ yfirleitt bara freknur og bleikar rasskinnar.

4. Stundum er ég dómhörð og ofurpirruð, stundum glöð og kát, stundum hata ég allan heiminn og stundum fæ ég ekki nóg af lífinu...markmiðið er að upplifa sem flestar tilfinningar á einum degi og ráða við það!!

5. Ég myndi deyja ef ekki væri til: tónlist, coke light, blingbling, smirnoff vodki m klökum og vatni og mynd sem heitir kevin & perry go large, hahaha :) ..já og fólkið sem ég elska auðvitað!

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ skvís!!! Ohh ég var einmitt að klukka þig á minni síðu...!! En jæja allir vel klukkaðir og hafðu það gott litla ljós;o) knúsa þig í beyglu! þín Anna Panna

9:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hei ég var líka að klukka þig á minni síðu ;) þú ert sem sagt marg klukkuð sem þýðir á færeysku mjög klikkuð ;)

12:42 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Oh hvað ég er sammála þér með myndina - snilldarmynd! ...All I wanna do is do it, all I wanna do is do it, all I wanna do is do it...hehe ;)
kv.
Jóhanna Sigríður

5:20 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

já þessi mynd er æði!!! "I´m not your slave!!" hahahahaha :)

7:09 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home