laugardagur, janúar 21, 2006

people are fragile things u should know by now..

Hvað myndi gerast ef Unnur Birna væri með eins þátt og Óli þarna hr. Ísland?? Það yrði allt vitlaust og hún yrði úthrópuð athyglissjúk gæra..eða það er ég allavega alveg viss um. Var heima í gær og horfði á þennan ógeðis Splash þátt, ojjojojojjjj! Þarna voru tveir bræður ,,heltanaðir" og frekar sveittir að reyna að babla sig í gegnum þáttinn, hálfstjarfir af drykkju. Inni á milli aulabrandara (sem voru teknir upp í limmósíu með leysigeislum) þá mátti sjá svona innskot af e-m pjöllum í ugly nærfötum dansandi hálf aumkunarverða erótíska dansa, ekki í takt við tónlistina.

Ég fór þessvegna að pæla í þessum hr. og ungfrú Íslands reglum...ungfrú Ísland má næstum ekki neitt en það á greinlega ekki við um hr. Ísland. Ég var eiginlega bara pínu hissa...bjóst frekar við því að maður sem gegndi jafn mikilvægu embætti væri frekar í world class að æfa til að geta tekið þátt í fl fegurðarkeppnum fyrir Íslands hönd í staðinn fyrir að djamma m ruslgellum í beinni útsendingu...

En hvað veit ég svosem..

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

I TOTALY AGREE WHIT YOU... like allways ;) Þetta eru ekkert smá glataðir þættir og þessi gaur er nú ekki beint að senda fágaða ýmind af sér út í samfélagið með þessari hegðun ;) OG já vá yrði allt brjálað ef Unnur litla tæki þátt í svona dæmi... En ég held reyndar að þú gerir ekkert eftir hr.ísl... Held þeir fari ekki í neinar keppnir úti né neitt... bara gott fyrir okkur... ef við sendum þennan hnakka eitthver út fyrir landsteinanan halda allir að ísland sé yfirfullt af klíjulegum tjokkóum ;)

12:37 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hehehe það er greinilega valdamikið fólk sem les þetta hjá þér.... búið að svipta gaurinn titlinum!!

12:09 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hmmm já Gyða þú hefur greinilega meiri völd í þjóðfélaginu en þú heldur ;)

6:01 e.h.  
Blogger Gyda said...

hei já einmitt..það var e-r að segja mér það að hann hefði verið sviptur...það hlýtur að vera hægt að lesa það alltsaman í dv ;) en guð hvað það hlýtur samt að vera vont að fá heftibyssuskot í rassinn eins og strákurinn í splash! :/

5:21 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home