þriðjudagur, janúar 10, 2006

smá breyting..
sem ég gerði alein og upp á eigin spýtur..geri aðrir betur þar sem ég bjó ekki einusinni til þessa bloggsíðu upphaflega! Anna sæta gerði hana fyrir mig svo hún gæti fylgst með því sem væri að gerast;)

Jám...hafa fleiri en ég tekið eftir því að til eru karlmenn á Íslandi sem ganga með svona litlar og hvítar, asnalegar næstum kollhúfuhúfur???????? Og er e-r sammála mér um hvað það sé ljótt!!!!!!!!!!!!!!!! oj ég hélt ég myndi gubba áðan þegar ég sá einu svona fyrirbrigði bregða fyrir...hvað fær ykkur, strákar mínir, til að fara út svona? Hún nær ekki einu sinni niður fyrir eyru og er því ekki hægt að bregða fyrir sig neinum skjólrökum.
Ég er svona að spá hvort e-r hafi talið þeim trú um að hvíti liturinn drægi betur fram hvítar tennur, skær augun eða frískaði uppá húðlitinn...og svona til að leiðrétta þann leiða misskilning þá gera húfurnar það ekki, þær eru hinsvegar fín leið til að pikka út fórnarlömb tískuslysa því hvítir kollarnir eru ansi áberandi svona í skammdeginu

3 Comments:

Blogger Gyda said...

hver veit...ég furða mig á þessu!

8:23 f.h.  
Blogger Gyda said...

jám enda fínt að vera með húfu sem er húfa og nær niður fyrir eyrun..skil bara ekki þessa litlu kolla sem eru útumallt, eru það kannski húfur í of litlu númeri??

10:40 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

eru þetta ekki bara gyðingar?

8:57 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home